Um allt og ekkert, helst sjónvarp og kvikmyndir...

Wednesday, October 07, 2009

Man Som Hatar Kvinnor


Ég er hálfnaður með myndina og mér lýst nokkuð vel á hana. Mér þótti ekki mikið til koma það sem maður sá úr henni fyrir sýningar og svo voru allir að lofsama þessari mynd. Ætlaði alltaf að sjá hana í bíó en það varð aldrei úr því. En nú er ég tæplega hálfnaður með myndina og mér þykir hún bara nokkuð góð. Ég er að horfa á hana textalausa sem að var smá vesen í fyrstu en svo er þetta fljótt að koma.

Tuesday, September 22, 2009

Amadeus


Í kvöld fór á að sjá myndina Amadeus. Þessi mynd er frá 1984 og sýning hennar í Háskólabíó er hluti af kvikmyndahátið Reykjvíkur (riff.is). Leikstjór myndarinnar, Milos Forman, er staddur hér á landinu og var við sýningu myndarinnar, þar sem hann svaraði nokkrum spurningum áhorfenda. Ég náði að skjóta einn spurningu sem var jafnfram síðasta spurningin.
Þessi mynd er sérstök að mörgu leiti fyrir mig persónulega. Ég hef alltaf verið mikill kvikmynda-njörður og er Amadeus hluti ef þeim pakka. Ég sá myndina fyrst í bíó þegar að hún kom út, síðan eignaðist ég mynina á VHS um ári seinna. Ég horfði mikið á þessa mynd og út af mörgum ástæðum, en einna helst var ég var heillaður af sögunni og jafnframt tónlistinni. Þessi mynd vakti áhuga minn á klassískri tónlist sem náði nú hámarki í kringum myndina og nokkrum árum seinna. Eins og áðurnefnt þá átti ég þessa mynd og horfði á hana reglulega. Í raun held ég að ég hafi horft á þessa mynd u.þ.b. einu sinni á mánuði í eitt eða tvö ár en svo eitthvað minna þegar leið á árin. Ég svona fljótt á litið á held ég að ég sé búinn að sjá þessa mynd um 30 til 40 sinnum og er það met hjá mér... og pínu skjúkt. Mér er nokkuð sama, þar sem ég læt njörðinn njóta þess. Ég verslaði mikið af LP plötum, klassískum á þessum tíma, 1986-1990, mikið af Mozart en einng önnur tónskáld eins og Beetoven, Mendelson, Verdi, Vivaldi og fleiri klassíska meistara. Þrátt fyrir þetta safn þá er og hefur Mozart alltaf verið í uppáhaldi hjá mér.
En með þessum skrifum þá vildi ég bara leggja áherslu á hvað mér þótti mikið umað fá að hitta leikstjóra myndarinnar og ná að spyrja hann eina spurningu. Hún var nú ekki svo sem merkileg. Ég spurði hann hvað honum fyndist að sjá þessa mynd núna 25 áraum seinna. Hann svaraði að hann væri mjög sáttur að fólk hefði enþá áhuga á að koma í kvikmyndhús til þess að sjá þessa gömlu mynd.

Saturday, September 12, 2009

Inglourious Basterds


Verð að segja það að ég hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum með myndum frá Q. Taratino. Hann er snillingur að blanda saman skemmtilegum hversdagslegum samræðum við gróft ofbeldi. En samt með tilgangi er svo virðist. Það er auðvelt að láta menn drepa hvorn annan í kvikmynd, en ekki oft sem leikstjóri nær að víxla með samúðina á geranda og þolanda. Þá meina ég að mörkin eru ekkert alltaf skýr hver gerir rétt og rangt. En þetta er kannski all mjög djúpt,.. mér fannst myndin mjög góð. Skemmtilega uppbyggð og flott atriði. Sagan góð og leikurinn góður.

Sunday, August 30, 2009

Gékk út úr bíó!


Ég fór á þessa mynd fyrir tveimur dögum síðan. Ég ætla ekki að eyða orðum í að tala um myndina, þar sem hún var svo léleg. En vildi bara segja að það er ekki oft sem ég geng út úr bíó. Læt ekki bjóða mér hvað sem er!

Tuesday, August 11, 2009

Saturday, July 18, 2009

District 9


Þessi gæti verið ágæt!

Friday, July 10, 2009

Couples Retreat


Þessi verður örugglega góð afþreyging.